ElectroMax
Grace ElectroMax fjarlægir allt ryk, grófa loftmengun og tóbaksreyk. Grace ElectroMax byggir á fjölsíukerfi, fyrsta stig er forsía sem tekur grófasta rykið, eins og húðflögur og hár. Annað stig er ElektroMax sían (rafstöðusía). Þriðja stig er kolefnissía sem fjarlægir alla ólykt s.s. tóbaksreyk.
ElectroMax áður óþekkt lofthreinsun, sían hreinsar smæstu agnir allt niður í 0,01 mikron (=0.00001mm !) þetta er framkvæmt með rafhleðslu, agnir með samskonar hleðslu, jákvæða eða neikvæða, hrinda hvor annari frá sér meðan agnir með andstæða hleðslu laðast að hvor annari. Mengað loftið sogast í gegnum jónunar hlaðna málmrind með hárri spennu. Þetta gefur ögnunum jákvæða hleðslu sem laðast að neikvætt hlöðnum söfnurum, þar festast agnirnar og fara því ekki út í andrúmsloftið aftur. Að lokum síast loftið í gegnum kolefnissíu sem fjarlægir alla lykt og óþef.
Grace er fáanlegt í 7 spennandi litum. Með snilldarlegri og tímalausri hönnun tekst að fella tækið inn í nánast hvaða umhverfi sem er. Tækin eru notendavæn og mjög lágvær og valda því ekki óþægindum.
Loftið hreinsað og dreift aftur innan rýmisins, þannig fer ekki dýrmætur hiti eins og þegar loftið er leitt út. Í VisionAir er hægt að setja FreeBreeze glös sem tryggja að hreinsaða loftið ilmar ferskum blæ.
Andaðu léttar, gott og faglegt viðhald er nauðsynlegt til að ná fram bestum árangri lofthreinsitækja. Ef þú vilt tryggja þér hreint loft á vinnustaðnum þínum bjóðum við sérstaka viðhalds og þjónustusamninga.
Val á réttum búnaði / Við gerum nákvæma könnun og mælingar á innanhúss umhverfi til að tryggja rétta lausn eftir umfangi vandans. Þegar réttur búnaður hefur verið valin gerum við tilboð með uppsetningu og afhendingartíma.
Grace MediaMax þjónar allt að 100m3 rými.
Ítarefni
Tæknilegar upplýsingar
Grace MediaMax
Stærð: 850 x 380 x 290 mm
Þyngd: 15 kg
Rafmagnsnotkun: 230V / 50Hz 90w
Hraðastillingar: 3
Stærð rýmis: allt að 90 m³
Afkastageta: 395 m³ / klst
Síur: Forsía, Rafstöðusía
Free Breeze: já
Standur: Snúningsfótur
Litir : fæst í sjö litum