Dental
VisionAir Dental er notað til sía og hreinsa loft í tannlæknastofum. VisionAir Dental dregur úr mengunar og eyturáhrifum kvikasilfurs og annara efna, s.s málmsvifryks, postulínsryks, leirögnum, sótthreinsiefnum og einliða ögnum, sem þyrlast um andrúmsloft tannlæknastofunnar. Vinna með amalgam eða jafnvel það sem verra er að fjarlægja það, veldur mikilli uppgufun kvikasilfurs út í andrúmsloftið.
VisionAir er fáanlegt í tveimur útfærslum, eftir hvað hentar stærð vinnusvæðis. Báðar stærðirnar er hægt að festa neðan á loft eða fella inní loft. VisionAir ¹ er einnig hægt að fá á veggfestingu eða á hjólastand, VisionAir ² hefur tvöfalda vinnslugeta á við VisionAir ¹ og er tvöfalt stærri. Með snilldarlegri og tímalausri hönnun tekst að fella tækið inn í nánast hvaða umhverfi sem er. Tækin eru notendavæn og mjög lágvær og valda því ekki óþægindum.
Loftið hreinsað og dreift aftur innan rýmisins, þannig fer ekki dýrmætur hiti eins og þegar loftið er leitt út. Í VisionAir er hægt að setja FreeBreeze glös sem tryggja að hreinsaða loftið ilmar ferskum blæ.
Sérhönnuð kvikasilfurssía hreinsar loftmengun í þremur áföngum og tryggir hagkvæmustu gildi andrúmsloftsins. Forsía og rafstöðusía grípa stærstu agnirnar og útrýma smærra ryki og öllum tegundum örvera með skilvirkum hætti eða næstum 100% (99,997%). Kvikasilfur sía dregur ekki aðeins úr styrk kvikasilfurs og annarra eiturefna úr andrúmslofti, hún eyðir líka allri óþægilegri lykt.
Mögulegt að bæta við, framsýnir tannlæknar bæta oftast við UV ljósabúnaði (SterilAir), sem eyðir örverum eins og bakteríum, veirum og sveppum.
Andaðu léttar, gott og faglegt viðhald er nauðsynlegt til að ná fram bestum árangri lofthreinsitækja. Ef þú vilt tryggja þér hreint loft á vinnustaðnum þínum bjóðum við sérstaka viðhalds og þjónustusamninga.
Val á réttum búnaði / Við gerum nákvæma könnun og mælingar á innanhúss umhverfi til að tryggja rétta lausn eftir umfangi vandans. Þegar réttur búnaður hefur verið valin gerum við tilboð með uppsetningu og afhendingartíma.
VisionAir ¹ allt að 300m3 VisionAir ² allt að 600m3
Ítarefni
Tæknilegar upplýsingar
VisionAir ¹
Stærð: 630 x 620 x 290 mm
Innfellingardýpt: 210 mm
Þyngd: 16 kg
Rafmagnsnotkun: 230V / 50Hz
Lofthreinsari 95 W
auk UV lampa 22 W
Hraðastillingar: 4
Stærð rýmis: allt að 300 m³
Afkastageta: 1150 m³ / klst
Síur: Forsía, Rafhleðslusía, Kvikasilfursía
Free Breeze: já
Stjórnun:
fjarstýring, AirMonitor (valkostur)
Uppsetningarmöguleikar :
frístandandi á fæti (aukabúnaður),
á loft eða vegg,
innfellt í loft eða í vegg,
Litir : OffWhite
Valkostir: UV sterilAir, AirMonitor, VisionAir Display
VisionAir ²
Stærð: 630 x 1050 x 290 mm
Innfellingardýpt: 210 mm
Þyngd: 32,5 kg
Rafmagnsnotkun: 230V / 50Hz
Lofthreinsari 200 W
auk UV lampa 44 W
Hraðastillingar: 4
Stærð rýmis: allt að 600 m³
Afkastageta: 2300 m³ / klst