ElectroMax
VisionAir ElectroMax fjarlægir allt ryk, grófa loftmengun og tóbaksreyk. VisisonAir ElectroMax byggir á fjölsíukerfi, fyrsta stig er forsía sem tekur grófasta rykið, eins og húðflögur og hár. Annað stig er ElektroMax sían (rafstöðusía). Þriðja stig er kolefnissía sem fjarlægir alla ólykt s.s. tóbaksreyk.
ElectroMax áður óþekkt lofthreinsun, sían hreinsar smæstu agnir allt niður í 0,01 mikron (=0.00001mm !) þetta er framkvæmt með rafhleðslu, agnir með samskonar hleðslu, jákvæða eða neikvæða, hrinda hvor annari frá sér meðan agnir með andstæða hleðslu laðast að hvor annari. Mengað loftið sogast í gegnum jónunar hlaðna málmrind með allt að 8000V spennu. Þetta gefur ögnunum jákvæða hleðslu sem laðast að neikvætt hlöðnum söfnurum, þar festast agnirnar og fara því ekki út í andrúmsloftið aftur. Að lokum síast loftið í gegnum kolefnissíu sem fjarlægir alla lykt og óþef.
VisionAir er fáanlegt í tveimur útfærslum, eftir hvað hentar stærð vinnusvæðis. Báðar stærðirnar er hægt að festa neðan á loft eða fella inní loft. VisionAir ¹ er einnig hægt að fá á veggfestingu eða á hjólastand, VisionAir ² hefur tvöfalda vinnslugeta á við VisionAir ¹ og er tvöfalt stærri. Með snilldarlegri og tímalausri hönnun tekst að fella tækið inn í nánast hvaða umhverfi sem er. Tækin eru notendavæn og mjög lágvær og valda því ekki óþægindum.
Loftið hreinsað og dreift aftur innan rýmisins, þannig fer ekki dýrmætur hiti eins og þegar loftið er leitt út. Í VisionAir er hægt að setja FreeBreeze glös sem tryggja að hreinsaða loftið ilmar ferskum blæ.
Mögulegt að bæta við, hægt er að bæta við UV ljósabúnaði (SterilAir), sem eyðir örverum eins og bakteríum, veirum og sveppum. Og Kolefnissíu sem dregur í sig alla lykt og óþef.
Andaðu léttar, gott og faglegt viðhald er nauðsynlegt til að ná fram bestum árangri lofthreinsitækja. Ef þú vilt tryggja þér hreint loft á vinnustaðnum þínum bjóðum við sérstaka viðhalds og þjónustusamninga.
Val á réttum búnaði / Við gerum nákvæma könnun og mælingar á innanhúss umhverfi til að tryggja rétta lausn eftir umfangi vandans. Þegar réttur búnaður hefur verið valin gerum við tilboð með uppsetningu og afhendingartíma.
VisionAir ¹ allt að 300m3 VisionAir ² allt að 600m3
Ítarefni
Tæknilegar upplýsingar
VisionAir ¹
Stærð: 630 x 620 x 290 mm
Innfellingardýpt: 210 mm
Þyngd: 16 kg
Rafmagnsnotkun: 230V / 50Hz
Lofthreinsari 95 W
auk UV lampa 22 W
Hraðastillingar: 4
Stærð rýmis: allt að 300 m³
Afkastageta: 600 m³ / klst
Síur: Forsía, ElectroMax sía, Kolefnissía
Free Breeze: já
Stjórnun:
fjarstýring, AirMonitor (valkostur)
Uppsetningarmöguleikar :
frístandandi á fæti (aukabúnaður),
á loft eða vegg,
innfellt í loft eða í vegg,
Litir : OffWhite, Bronze
Valkostir: UV sterilAir, AirMonitor, VisionAir Display
VisionAir ²
Stærð: 630 x 1050 x 290 mm
Innfellingardýpt: 210 mm
Þyngd: 32,5 kg
Rafmagnsnotkun: 230V / 50Hz
Lofthreinsari 200 W
auk UV lampa 44 W
Hraðastillingar: 4
Stærð rýmis: allt að 600 m³
Afkastageta: 1200 m³ / klst